|
|
28.10.2007 20:04:08 / evelyn
Hæhæ allir, ef einhver les þetta enþá...
Ég og pabbi vorum að setja lag á youtube... Hérna er linkurinn, endilega kíkið og commentið ef þið getið...
http://youtube.com/watch?v=-j_DZi_Uzms
Einnig erum við með 3 önnur frumsamin lög sem koma upp ef þið skrifið Sammi and Eva í search,,, Bara að láta vita.
Allt gengur super hjá mér, er að fíla nýju vinnuna í tætlur.. Ég sakna Jórunnar, en við Fannar erum að fara til hennar og Bjarna eftir rétt rumar 3 vikur jeijjjjj !!!!!!!
Ok nóg í bili, bæjó...Eva
»
14.08.2007 17:42:17 / evelyn
Jæja, núna er langt síðan ég skrifaði, ávað að láta fólk vita að ég
er á lífi, ef einhver er að fylgjast með þessu bloggi !!
Jæja það er allt flott að frétta hjá mér, er byrjuð í nýju djobbi,
er sko að reyna að finna mér stað í lífinu og það getur greinilega
verið ansi erfitt. Ég er að vinna á leikskóla í Kópavoginum, sem er
fínt. Ég ákvað í byrjun að gefa mér mánuð áður en ég ákveð mig
hvernig mér finnst nýja djobbið, but so far so good. Líkaði vel
þessir 6 dagar sem eru búnir.
Ég og Fannar erum búin að vera svolítið dugleg að vera uppí íbúð,
en það var nottla verið að standsetja hana frá byrjun, þannig að
þetta er soldið langt prósess, en auðvitað gerast góðr hlutir hægt
(því miður, ég er farin að hlakka til að flytja inn)... Vonandi
getum við flutt inn snemma í september. 7,9,13 xxx
Svo er nottla bara þetta ár (skólaár) ætlað til að finna það út sem
ég vill læra og starfa við þegar ég verð "stór" hehe.. LORD KNOWS
OK, nóg raus í bili, tjá....Eva
»
16.06.2007 16:43:18 / evelyn
Jæja, þá er egó brjálæðið og ofur montið yfir því að vera
stúdent loksins fokið útí veður og vind, og þessi mikla viska
sem mér fannst ég öðlast á þessu andartaki þegar mér var rétt
prófskírteinið mitt virðist vera fokin líka 
Núna er ég bara að vera. Það er svolítið skrýtið að vera
bara eftir að hafa svona lengi verið að reyna að ná einhverju
takmarki sem virtist svo órafjarri. Núna fæ ég ekki lengur
kvíðahnút í magann þegar ég hugsa um háskólan y,fir þeim áhyggjum
að ég yrði aldrei með það próf sem til þyrfti til að komast í hann,
og fyllist ekki jafnmikilli fílu þegar krakkar tveimur jafnvel
þremur árum yngri eru að sækja um í háskólanum... Veit ekki, núna
er ég bara að vera. Ekkert stress, og enginn mikil plön, allavegana
hvað menntun varðar. Jújú mennta mig örugglega eitthvað
frekar, en ég barasta nenni ekki að spá í því núna ...
Það er nefninlega nóg að spá og spegúlera hjá mér, fyrir
þá sem ekki vita það þá er ég nefninlega að fara að flytja á brott
frá mor og far núna í sumar. Stefnan tekin á seint í júlí eða
snemma í ágúst. Ég er auðvitað að fara að flytja með kæró honum
Fannari og við erum mjög ánægð og spennt yfir þessu, þó aðallega ég
held ég. Ég er að missa mig, komin með kaupæði og vill liggur við
fara að fjárfesta í sundlaug í "garðinum"
okkar, kaupa ALLT í IKEA, og ég veit ekki hvað og
hvað... Auðvitað er þetta svona lítil
krúttaraleg íbúð, sem verður voða sæt þegar hún er alveg
tilbúin.
Svo er ég bara á fullu að vinna, vinn alltaf 12 klst og tekur
mig hálftíma að keyra heim þannig að ég nenni aldrei að gera neitt
eftir vinnu, þá geri ég líka bara þeim mun meira frídagana mína inn
á milli.. 
Jæja hef ekkert meira að tala um núna, verð að far að þjónusta
einhverja hótelgesti sem kaupa endalausan Pilsner 
Kv. Evan
»
29.05.2007 19:16:58 / evelyn

Ógeðslegur egó, en ég er bara svo ánægð með þessa mynd.
Hér hafðið það, Eva Hlín er stúdína 
Allir verða að sjá myndina Mar Adentro! Hún er rosalega góð.
Kveðja Eva
»
20.05.2007 22:31:05 / evelyn
Stúdent at last !!!!!!!!
Vááá hvað ég hefi beðið alltof lengi eftir að þetta gerðist, já ég
náði þeim langþráða áfanga í gær að útskrifast sem stúdent frá
Borgarholtsskóla Íslands. Svo var mínum nánustu boðið heim til mín
að þyggja veitingar og drekka áfengi, sem var gert og það í miklum
mæli  Já dagurinn allur og kvöldið var rosalega vel heppnað og ég
gæti ekki verið ánægðari. Fór niður í bæ með völdum vinum og
dansaði aðeisn drakk smá áfengi og tók við glaðlegum kommentum um
húfuna mínu hvítu, en ekki er laust við að mér hafi nú liði soldið
eins og stjörnu með húfuna mína  Nú, hamingjuóskir er ekki bara
vel þegnar heldur einnig skylda að bera fram í # komment # hér á
blogginu. Málið er að ég er nefninlega svolítið forvitin um það
hverjir það eru sem skoða síðuna mína, þar sem ENGINN kommentar. Nú
ef ég fæ engar hamingju óskir þá veit ég það fyrir víst að ég á
enga vini
En jæja my fabulous man er komin með gott þynnkunammi og spólu svo
æ gasta go
Greetings my lovely darlings
Kv. Eva ofurklári stúdent
»
16.05.2007 14:37:20 / evelyn
The source feat. Candi station check it out!!!! Án ef eitt það
allllra svalasta lag veraldar, vááááá það er svo geðveikt, textinn
og söngurinn hjá gellunni shit ég fæ bara gæsahúð!
Þið Hamrógellur hljótið nú að muna eftir þessu lagi hehehe
Sumarbústaðarlagið okkar
Well that´s it for now
Kveðja Eva Hlín
»
06.05.2007 16:49:00 / evelyn
Vá það er langt síðan ég bloggaði seinast, ég hef bara ekki gert
neitt mjög mikið ..
Ég er hinsvegar í vinnunni núna á þessum líka bráðfallega
sunnudegi og mér leiðist, svo ég ákvað að henda inn einnu stuttu
bloggi um lífið og el tilver.
Ferminginn hennar Brekku sys gekk mjög vel, og hún fylgdi
fjölskyldu hefðinni það er að gefa mér helminginn af
fermingargjöfunum sínum --- Svo gerðist ekkert mikið í
vikunni, var í fríi seinustu helgi, en tók aukavakt á laugardeginum
svo ég gerði ekkert því miður. En ég er alltaf að plana að gera
eitthvað sniðugt. --- Næstu helgi ætla ég samt að "pull it off". Ég
ætla nefninlega að mála herbergið mitt hvítt. og setja upp
fallegu nýju björtu gluggatjöldin sem ég var að fjárfesta í ...
Ég er komin með leið á svona ofboðslega drungalegu
herbergi eins og herbergið mitt er... (fyrir þá sem hafa ekki
heimsótt herbergið mitt þá skal ég segja ykkur að það eru vínrauð
gluggatjöld dökk, og veggirnir eru dökk málaðir. S.s þunglynt
herbergi) Ég vil smá birtu í líf mitt, það gerir manbn svo glaðan
og ferskan.
En þarna hoppaði ég yfir heila helgi, nefninlega þessa hlegi.
Hún er soldið merkileg, já hann Fannar minn átti nefninlega afmæli
í gær. Já hann er orðinn gamall strákurinn, alveg 22.ára. Ég bauð
ástinni minni auðvitað út að borða, en við fórum SNEMMA heim, Eva
litla var nefninlega veik á föstudaginn með smá hita og allt, og
ennþá hel slöpp í gær gat ekki einu sinni farið í vinnuna... Sem
var svolítið fúlt því upphaflega var planið nú að fá sér aðeins í
glas með kallinum sínum á afmælinu hans ..
---- En ég bæti Það bara upp með að vera vel slompuð næsta
laugardag, en þá held ég einmitt að júróvísjon sé..?? Annars er ég
svo útúr í hvenar það er...iss whatever verð bara blind blekur
hvort sem það er eða ekki 
Jæja nú þarf ég að fara að skrifa mega heimspekilega ritgerð um
Mr. Oliver Twist með öllu ruglinu Thesis statement og læti. Það sem
maður leggur á sig til þess að verða stúdent... Og fyrir hvað .. ?
Ég er fyrir löngu búin að ákveða að vinna í lottóinu ..?
Ok gasta go homies ... Eva
»
21.04.2007 12:59:31 / evelyn
Hver er heitasti staðurinn um þessar mundir ??
Pravda beibí Ég ætla á þann ekki reyklausa stað Pravda, og
dansa af mér rassgatið, svo fá mér einn sjóðheitan Kebab og BURN
orkudrykkinn!
Já svona grín hefur tröllriðið SMS heiminum síðustu daga eða
frá því að Pravda club brann til kaldra kola á
miðvikudaginn... Þetta var ekkert smá dæmi maður, vá... Sjladan séð
annað eins...
Annars er mest lítið að frétta af mér, er bara að hanga í
vinnunni, bíða eftir að Fanni boy hringi frá Barcelóna, svo er ég
nottla að gera mig andlega reddí fyrir ferminguna hennar Brekku, en
eins og sumir vita, þá finnst mér óendanlega leiðinlegt í kirkju ..
Hlakka samt til að sjá hana alla fína í fötunum með hárið
og læti .. Og svo ætla ég nottla að taka toll af
fermingargjöfunum.
Enn núna ætla ég að halda áfram að vinna og reynað gera
eikkað nytsamlegt
Kveðja Eva slefa
»
16.04.2007 15:23:23 / evelyn
Jæja, þá er
frábærri helgi lokið... Hún byrjaði nú eiginlega á
fimmtudeginu en þá skellti ég mér á útgáfu tónleika á Barnum
með henni Þórhildi en var spök á því. Það var mjög
gaman. Svo á föstudeginum fór ég í
bústaðarferð með grunnskóla systrum mínum. Það var sko mega
fjör. Við vorum náttúrulega allar vel í glasi, og tróðum
okkur 11 ofan í ca.6-8 manna pott. Svo var sungið Spice
Girls,Ace of Base, farið í ég hef aldrei, og drukkið
meira.. Þetta var bara hin besta skemmtun í alla staði. Takk
fyrir mig stelpur.Svo á laugadeginum var keyrt
í bæinn og ég skreið strax uppí bólið mitt til að hænublunda.
A.k.a borða snakk, drekka kók og vatn og glápa á Sex and The
City. Ég fór til Bjöggu um
kveldið og við horfðum á söngvarakeppni framhaldsskólana
í miklum stemmara og fagnaðarlætun ætluðu
allt um koll að keyra þegar hann Gaui bekkjarbrói úr
Hamraskóla lauk söng sínum fyrir hönd Borgarholtsskóla...
Hann stóð sig eins og hetja!
Svo skelltum við oss bara
niðrí bæ. Fórum á Bellys að kaupa ódýrann bjór og ég gat þá flirtað
aðeins við Fannar og klipið í rassinn á
honum kommon ég var nottla í glasi... Don´t judge
me 
Svo var það
Pravda sem er nú ekki minn uppáhalds staður, eeen Nanna
systir Bjargar var að vinna svo við skelltum oss þangað og
við Björg dönsuðum af okkur rassinn í 6 mínotur. Þá fengum
við hlaupasting og fórum niður að drekka meira bjór og hvíla
okkur. Svo var það Barinn með Þórhildi og Lindu, svo heim að
sofa. Var sem sagt þunn fyrir 2 fyllerí á sunnudeginum, en
var samt það hress að fá Fannar í kolaportið að versla
afmælisgjöf fyrir hann pabba minn og harðfisk. Hann
pabbi varð 25 ára í gær

Svo át ég
skammarlega mikið af Devitos pizzu í þynnkumat. Ummmm
þynnkumatur J
Núna
er ég í vinnunni að reyna að hemja afbrýðisemina mína, já hann
Fannar er nefninlega að fara til Barcelóna á
miðvikudaginn... Ohhh hvað hann er heppinn!!! Ég er föst á kalda
Íslandi og vill fara til Costa Rica eða Frakklands.. En jæja sollis
er lífið, stundum er mar fátækur, eða eins og ég ALLTAF. En ég ætla
samt að skemmta mér vel á Íslandi já ég ætla nefninlega á
grímuball. Hell yeah vera ýkt flott gella á grímuballi... Geri
aðrir betur Eeeen ég nenni ekki að skrifa meira,
ég sé
ykkurBæjó
»
07.04.2007 11:12:52 / evelyn
Jemms, ég er hérna í vinnunni páskahelgina og er að deyja
úr MAN HATING fíling
En já það er náttúrulega frekar einfalt að álykta að ég sé
allavegana nokkrum ljósárum á eftir í bókalestri, þar sem ég var að
lesa eyðimerkurblómið fyrst núna. Vááá mér finnst þétta mjög góð
bók vægast sagt. Ég er ennþá í sjokki yfir þessu, maður var
auðvitað búin að lesa allskonar hluti um þessa bók ´98 þegar hún
kom fyrst á markaðinn, en það er nothin meðað við að lesa alla
bókina..
Núna skora ég á alla að kíkja á UNIFEM.IS og fara að berjast
gegn fáfræði karlmanna í öllum heiminum... (Því
auðvitað er þetta allt fáfræði karlmanna,
ekki kvenmanna. Þær hafi mest lítið að segja um
þetta mál, karlmennirnir þarna í þessum Afríkulöndum ráða ÖLLU, og
láta bara umskera dætur sínar og systur eins og ekkert væri) Váá
hvað Ég er í antí karlmanna stuði núna. Pú á fáfróða
karlmenn...
Mér finnst bara að hópur kvenmanna ætti að gera innrás í eitt
afríkuríki og skera eistun af ca.100 karlmönnum.
Ááááán þess að deyfa þá, og nota ryðguð
rakvélarblöð til verksins og sjá hvort þeirra skoðun til umskurði
kvenna muni kannske breytast eilítið...
Svo ef maður spáir í því, er það ekki heimska karlmanna sem
leiðir af sér öll þessi stríð, í alvöru vegna þess að sannleikurinn
er bara sá að líkamlega eru þeir sterkari en hvað
gangnast líkamlegur styrkur þegar heilin virðist vera á stærð við
baun hjá sumum mönnunum. Þeir eru stríðsmennirnir, þannig að
þeir ákveða stríðin og morðin... Sem enda svo með að fullt af
saklausu fólki þ.a.m konur og börn sem kannski vildu aldrei neitt
stríð,, látast ....
Hvað haldið þið ? Ég tek fram að ég er engin
ufsagríla/rauðsokka/öfgafeministi, enda er þessu ekki beint til
meðalmanna á vesturlöndunum og í Asíu eins og pabba mínum, kærasta
eða bróður. Ég er bara svo reið núna ....
Eeeen nóg af svatsýnishjali, á meðan mannkynið er til, þá verða
karlmenn. Á meðan karlmenn eru til þá eru a.glæpir b.stríð og
c.fullt af öðru slæmu shitti ... Better get used to
it Núna ætla ég að hlusta á einhverja afslappandi
tónlist og búa mig undir næstu 8klst og 50 mínutur í vinnunni. Tek
það fram að ég mætti fyrir 3 klst og 10.mín.
Over and out..Eva Nöldrari
»
26.03.2007 12:55:30 / evelyn
Sjáiði hvað ég á fallegar frænkur !! Niðri í myndaalbúm ...
Kv.Slefan
»
25.03.2007 21:10:12 / evelyn
Hæhæ allir saman
Langt síðan ég bloggaði. Ákvað að henda inn einum stuttum by
popular demand ...
Já núna er sem sagt vinnuhelgin mín, en ég er ekki alltaf að
vinna, ónei. Á föstudaginn þarseinasta skellti ég mér á árshátíð
Subway og þar var sko mikið stuð. Ég og Jórunn fengum okkur
smá öllara hjemme hjá henni o svo var haldið á hótel Sögu í stuðið.
My peepols, voru búin að leigja herbergi og þar skelltum við
í okkur áfengi á milli þess sem við fórum ca.12 saman niðrí lobbý
að reykja (takið eftir að það vakti lítin fögnuð viðstaddra og
sérstaklega þá starfsmanna hehe), og skemmtum okkur hið besta fram
að the grand festival. Það var jummí góð súpa í forrétt og svo kjet
í aðal. Ég át nú ekkert hemsmeta mikið eins og ég geri
vanalega enda fékk ég ekki krampa í mallan á þessari árshátíð eins
og seinast... Allir héldu að ég væri of drukkin á þeirri árshátíð,
sem ég vitanlega var, en ég ekki þaaaað drukkin. SVo fórum við
aftur upp að sötra meir og svo bara CAN´T WALK AWAY hell yeah
Herbert töffari komin til að skemmta okkur... Og það var sko dance
my ass off! 'Eg og Brandur í stemmara!
Ég var í svona old fashion svörtum og hvítum kjól með perlu
armbandið og eyrnalokkana hennar mömmu og hárið pent í svartri
spöng. Voðalega Bree Van de Kamp fíl eitthvað. Og það virkaði þó ég
segi sjálf frá, ég lúkkaði bara mjög vel Þetta kvöldið. Svo um 01
leytið kom my date for the evening hann Fannar að sækja mig og
var svo næs að stoppa á Dominos á leiðinni heim, en eins og allir
vita þá er: ég drukkin = gráðugasta manneskja veraldar
!!! Ég át líka næstum heila 12" pizzu, stangir og kók....
Á laug var það eitthvað helvítis chill sem var æði spæði, man
ekki hvað ég gerði, hvort ég fór ekki í bíó eða eitthvað álíka og
borðaði eitthvað gott með familíunni og lét mömmu (sorry mamma)
mína hlaupa útum allan bæ til að kaupa svína kjöt fyrir mig (ég
náttúrulega borða ekki lambakjöt) til þess eins að komast að því að
ég borða ekki heldur svínakjöt. Þessi þróun í át til að verða vegan
er mjög disturbing (og óviljandi) því hérna í dennen fannst mér
kjet mjög gott ...
Svo leið vikan bara í norminu, fór og sótti mér innlegg sem
ég spanderaði heilum 10.þús kalli í. Ef ég verð ekki há og mjó
eftir einnar viku notkun þá tjúllast ég... Nei ég er með svo
gallaðar lappir,að ég er eins og litlu börnin með heljarins
óþægileg innleg troðin ofanískóna mína, og það er SKO VONT að nota
þau... grjenj grjenj
Vá hvað stutta færslan mín er orðin löng, nenni ekki meir
Red, red
wine
Go to my head
Make me forget that I
Still need her so
Red, red wine
It`s up to you
All I can do, I`ve done
But mem`ries won`t go
No, mem`ries won`t go
Bæjó Jón spæjó
»
19.03.2007 19:39:51 / evelyn
Ummm muniði eftir SMámáli ??
I do...
»
11.03.2007 19:22:32 / evelyn
Þá er ágætri vinnuhelgi lokið... Thank god, það var alltof lítið
að gera hjá mér um helgina, Sunna sem er á móti mér í móttökunni
fær alltaf klikkaðar helgar fullt af drop by gestum og action,
eeeen ég hins vegar, fæ langan dag þar sem ekkert gerist, svo
á slaginu 20 þegar ég vil hlaupa út í hina frjálsu verold, þá
kemur upp vesen eins og í gær sem veldur því að ég kem heim til mín
20:50 ... Ég fer núna til Fannars að elda fyrir hann
pasta, og glápa á Imbann... Sepnnandi hehe
Á morgun ætla ég að kaupa kort í World Class eða klóstið eins og
ég kýs að kalla þann stað (do you get it,,, WC hehehehehe(ok
ég er lúði ég veit það) ) og fara að mæta grimmt í jóga til að allt
stress og vöðvabólga fljóti mjúklega í burtu og ég verð steressfrír
zen rólegur einstaklingur með killer rass eftir ca.4 daga !!
Svo er það bara 4 ljósatímar á dag, svelti, gelneglur
aflitun, túberun á hári og sílíkon aðgerð því ég mun vera killer
pæja á föstudaginn á árshátíðinni, æ promíss !!! Set kannski inn
myndir af herlegheitunum ef ég nenni
Hef ekkert meir að spjalla um í bilio
Kv. Rocky Balboa
»
09.03.2007 17:27:45 / evelyn
Já já, djöf ætla ég að myrða einhvern núna, var búnnað skrifa
langa færslu en náði að deleta henni. Hér koma helstu punktar:
En vá hafiði séð Last King of Scotland? Geggjuð mynd og djöfull
átti Forest Whitaker skilið að fá Óskarinn fyrir hlutverk sitt sem
Idi Amin... En hafiði séð Apocolypto? Geðveik mynd, mér finnst ná
samt að strákurinn sem lék aðalhlutcverkið þar, hafi verið
sniðgenginn um tilnefningar því hann brilleraði að mínu mati.
En já "spennandi" helgi framundan hjá mér. Ég er að vinna frá
8-20 alla helgina og Fannar er líka að vinna svo að það verður
ekkert mikið spennó í gangi hjá okkur. Eeen sama má ekki segja um
næstu helgi, ég er nebbla að fara á Subverja árshátíðina, til að
tjútta með nefndinni minni. Svo notla verður mútta kannski á
staðnum , hún er nottla aðal pían af skrifstofu pakkinu, and last
but not least Fannar ætlar hugsanlega að kíkja aðeins með
kærustunni sinni!! Ég gæti lifað af án hans en það yrði nú gaman að
jamma aðeins með honum... Hlakka mikið til og ætlum við
Jórunn að vera rosalega fínar og pæjulegar svo er það nottla bara
niðrí bæ að djamma!!
Ég setti inn nýja skoðanakönnun og það má endilega kjósa !!
Hakúna Matata...Eva
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|